Efnahillur geyma spilliefni á öruggan hátt
Strangar reglur gilda um geymslu á hættulegum efnum. Sum efni, eins og sýrur, þarf að geyma í sérstaklega gerðum skápum fyrir hættuleg efni sem hægt er að læsa til að koma í veg fyrir óleyfilegan aðgang. Önnur eru ekki eins hættuleg og það getur verið þægilegra að geyma þau á efnageymsluhillum með innbyggðum söfnunarbakka. AJ Vörulistinn býður upp á öruggar geymslulausnir, hverjar sem þarfir þínar eru. Efnageymsluhillur
Galvaníseruð hillusamstæða með söfnunarbökkum bjóða upp á aðgengilega geymslu fyrir kemísk efni og olíur þar sem lítil hætta er á slettum eða leka. Ef ílátin skyldu leka hleypa hillurnar í gegnum sig 50% af lekanum sem síðan safnast fyrir í söfnunarbakkanum fyrir neðan botnhilluna. Þetta er örugg og þægileg lausn fyrir geymslu á hreinsivökvum, vélaolíum og öðrum minna hættulegum efnum.Tunnuhillur
Tunnurekkar eru fyrirferðalítil geymslulausn ef geyma þarf tunnur á vinnustaðnum. Stór söfnunarbakki undir hillurekkanum safnar í sig öllum slettum og leka, sem gerir vinnuaðstæðurnar öruggari. Söfnunarbakkinn er með innbyggða vasa fyrir lyftaragaffla sem gerir auðvelt að færa hann til og tæma þegar þess er þörf.