- AJ Vörulistinn
- Blog
- Tillögur og trend
- Góð ráð sem hjálpa þér að búa til samræmda og skilvirka skrifstofu– Gestablogg eftir Fridu Ramstedt ”tískusveiflur”

Góð ráð sem hjálpa þér að búa til samræmda og skilvirka skrifstofu– Gestablogg eftir Fridu Ramstedt ”tískusveiflur”
Þrjár leiðir til að færa meira líf og hlýju inn í skrifstofuna
- Ein einföld leið til að bæta fleiri náttúrulegum þáttum við skrifstofuna er að bæta við grænum plöntum. Veldu samt ekki bara plöntur af handahófi heldur reyndu að skapa meiri fjölbreytni með laufum í mismunandi stærðum og formum og gefa herberginu þannig meira samræmi og jafnvægi.
- Bættu við smáatriðum úr viði og steini. Húsgögn sem sýna náttúrulegar æðar viðarins eða einstakt mynstur steinsins geta haft róandi áhrif og brotið upp einhæft umhverfi. Allt er þó best í hófi. Of mörg óregluleg mynstur í rýminu geta í staðinn haft öfug áhrif og gert fólk órólegt.
- Hugsaðu um að hafa breytileg hráefni og áferðir í rýminu. Blandaðu saman sléttum glerflötum og máluðum flötum og aðeins grófari textílefnum og mynstruðum teppum til að gefa rýminu meiri karakter – jafnvel þótt litirnir séu í sama tón. Það myndast einnig náttúrulegir skuggar þegar ljósið fellur á húsgögnin í samanburði við rými þar sem allir fletir eru sléttir.
Góð ráð til að bæta einbeitinguna í opnu skrifstofuumhverfi
Ett öppet kontorslandskap gör att man kan få ut mer av varje kvadratmeter, men det skapar också utmaningar vad gäller arbetsron. Tre tips på lösningar:
- Þegar unnið er heimavið finnst fólki oft að afköstin verði meiri því það verður ekki fyrir truflunum frá samstarfsfólki. Þetta vandamál má leysa með hljóðdempandi skilrúmum á milli skrifborða vegna þess að þau deyfa klið frá samræðum, en draga líka úr hávaða frá gangandi umferð og skraphljóðum frá þeim sem vinna við næstu skrifborð.
- Skilrúmin hjálpa einnig við að draga úr sjónrænum truflunum, sem er mikilvægara en margir gera sér grein fyrir til að halda einbeitingu við vinnuna. Stundum getur það að sjá stafla af skjölum eða verkefnum á skrifborðum annarra, eða jafnvel líkamstjáningu þeirra verið nóg til að fá þig til að bregðast við.
- Með því að bjóða upp á setusvæði fyrir stutta fundi, helst í nokkurri fjarlægð frá skrifborðunum, eru þau sem þurfa að eiga samtöl hvött til að færa sig þangað – þannig geturðu forðast algengar truflanir sem stafa af opnu skrifstofuumhverfi.
Hávaðastjórnun og CLEAR SOUND
Það er margt sem þú getur gert með húsgögnum til að skapa þægilegra hljóðumhverfi.
- Innréttaðu rýmið með mjúkum efnum, eins og teppum og bólstruðum húsgögnum sem hjálpa til við að dempa hávaða.
- Hafðu í huga að bókahillur og opin geymsluhúsgögn hjálpa einnig við að brjóta upp og dreifa hljóðbylgjum samanborið við lokuð geymsluhúsgögn sem hafa tilhneigingu til að endurvarpa hljóðinu.
- Veldu réttu húsgögnin. Þegar starfsfólk þarf á næði að halda og að geta unnið í friði og ró í opnu skrifstofuumhverfi er hægindastóll eins og CLEAR SOUND stóllinn fullkomin lausn.
- Búðu til rými fyrir stutt samtöl, símtöl, eða rafræna fundi ef þú vilt forðast að trufla samstarfsfólkið og staðsettu þau fjarri skrifborðum þeirra.
Þrjár leiðir til nýta opið rými betur með færanlegum geymslueiningum
- Til að skapa aðskilin svæði í opnu skrifstofurými er hægt að nota hillur og skápa sem skilrúm. Gott ráð! Veldu hillur á hjólum þannig að þú getir fljótt og auðveldlega breytt skipulaginu ef þess þarf!
- Lágir skápar og bókahillur sem notuð eru sem skilrúm í opnum rýmum bæta einnig hljóðumhverfið. Bókakilir og kápur brjóta upp hljóðbylgur og draga úr endurómi.
- Lokaðar geymslueiningar geta hjálpað við að minnka áreiti og draga úr truflunum. Fyrir þau sem eru viðkvæm fyrir óreiðu geta skápar með rennihurðum og skúffum hjálpað við að fela hluti sem ekki er verið að nota þá stundina, ekki aðeins til að gera umhverfið snyrtilegra heldur einnig til að ekki þurfi að hugsa um þá meðan unnið er við annað.

6 góð ráð til að velja skrifstofustól
- Er stóllinn hæðarstillanlegur?
Það ætti að vera hægt að stilla hæð stólsetunnar þannig að þú getir setið með iljarnar á gólfinu og efri hluta líkamans í þægilegri hæð við borðið, án þess að þurfa að beygja úlnliðina að lyklaborðinu. Augun ættu að vera í þægilegri hæð miðað við skjáinn. Þar sem fólk er með ólíka líkamsbyggingu er gott að hafa hæðarstillanlega stóla. - Hvernig er líkamsstaðan þegar þú situr?
Styður stóllinn við neðra bakið eða siturðu boginn í baki með sveigðan háls? Til að draga úr álagi á bakið þegar unnið er við skrifborð ættið stólbakið að vera í snertingu við neðra bakið svo þú getir fært eitthvað af þyngd neðra baksins yfir á efri hluta þess. - Styður stóllinn við allt lærið?
Sumir stólar geta virst of litlir eða of stórir eftir því hversu langir fótleggirnir eru. Það ætti einnig að vera hnefastórt rými undir hnénu, fremst á setunni, þ.e. á milli setunnar og hnésbótarinnar. Þar eru æðar og taugar staðsettar nálægt húðinni og ef setan þrýstir á þann stað getur það skert blóðrásina, sem getur valdið ýmsum vandamálum, þar á meðal bólgum í neðri hluta fótleggjanna og fótanna. - Er sætisstaðan flöt?
Best er að velja skrifstofustól með hallanlega setu. Helst ætti frambrúnin að vera nokkrum sentimetrum lægri en aftari brúnin svo þú getir haldið bakinu og hálsinum í góðri stöðu þegar þú vinnur við skrifborðið. Það besta sem hægt er að gera út frá vinnuvistfræði þegar unnið er við skrifborðið er að sitja ekki í flatri stöðu heldur halla örlítið fram. - Geturðu breytt um stellingu?
Það er mikilvægt að breyta um stellingu af og til yfir daginn. Ein leið til þess er að velja stól sem leyfir þér að snúa þér og einnig að halla sætisbakinu aftur þegar þú vilt hvíla þig eða kannski eiga langt símtal. - Fá handleggirnir stuðning?
Stóll með arma sem eru bæði hæðar- og hliðarstillanlegir getur hjálpað við að draga úr álagi á handleggi og einnig vöðvana í hálsi, herðum og öxlum. Þannig stóll er góður valkostur ef það er pláss fyrir hann á skrifstofunni en það er mikilvægt að hægt sé að stilla hann að líkama þínum og hæð olnbogans. Armar sem eru of háir eða lágir geta valdið verkjum í handleggjunum.
Að breyta um vinnustellingu nokkrum sinnum á dag er lykillinn að bættri heilsu á vinnustaðnum. Það er því mikilvægt að bjóða upp á mismunandi stóla þannig að starfsfólkið geti skipt á milli þess að sitja í hefðbundnum skrifstofustól og virkum, vinnuvistfræðilegum stól. Þú heldur kannski að það skipti ekki máli hvernig þú situr eða stendur – en dæmigerð 40 stunda vinnuvika jafngildir í raun 2080 vinnustundum – á ári.
Vissirðu að skrifstofustólar eru stöðugri ef þeir eru með fimm eða fleiri fætur? Ef þeir eru aðeins með fjóra fætur er meiri hætta á að þeir velti eða verði óstöðugir þegar þú færir færir þig til eða teygir þig eftir einhverju. Ef undirstaða stólsins er aðeins með fjóra fætur ætti þyngdarpunktur hans að vera eins lágur og mögulegt er til að koma í veg fyrir að hann velti.

Góð ráð þegar velja á fundarborð
Hringlaga borð
+ Hringlaga borð auðvelda fólki að ná augnsambandi við hvort annað á fundum.
- Hringlaga borð taka hins vegar oft meira pláss eða þurfa meira rými umhverfis þau til að hægt sé að draga stólana út og setjast á þægilegan hátt. Sum fundarherbergi bjóða ekki upp á það.
Ílöng borð
+ Ílöng borð eru líklega algengasta gerðin af fundarborðum og nýtast vel á fundum þar sem fulltrúar fyrirtækisins sitja við aðra þess og viðskiptavinir á móti.
- Ílöng borð geta hins vegar skapað ákveðna fjarlægð frá þeim sem eru að tala hverju sinni, sem gerir erfiðara að halda augnsambandi og eiga í samskiptum.
Bátlaga borð
+ Bátlaga borð gerir að verkum að þau sem sitja á endunum ná betra augnsambandi við þau sem sitja við miðjuna eða við hinn enda borðsins. Rúnnaðar brúnirnar gera líka að verkum að borðplatan virðist fyrirferðarminni en ílangt fundarborð í sömu lengd.
- Lögun borðsins getur hins vegar verið ókostur ef nota á borðið undir stórar kynningar þar sem breiða þarf úr útprentunum og skjölum vegna þess að borðplássið er minna í hornunum.

Góð ráð þegar velja á stóla fyrir fundarherbergið
Réttar mælingar
Byrjaðu á því að bera hæð borðsins saman við hæð stólanna sem nota á í fundarherberginu ef þeir eru ekki hæðarstillanlegir (hámarksbil sem mælt er með á milli borðplötu og setu er 27 – 30 sm) Hæðarstillanlegir stólar eru sveigjanlegri þar sem þeir passa við fleiri gerðir af borðum og gera öllum mögulegt að sitja þægilega, óháð líkamshæð þeirra. Ef þú kaupir tilbúinn pakka með borðum og stólum frá AJ höfum við þegar reiknað út bestu lausnina fyrir þig.
Snúningsstólar – félagslega betri kostur
Snúanlegir stólar gera fundina eðlilegri þar sem auðvelt er að snúa sér að þeim sem talar hverju sinni. Að auki gera þeir auðveldara að skipta um stellingu þegar setið er lengi, sem getur hjálpað fundargestum að halda sér vakandi og halda einbeitingunni á meðan á fundinum stendur.
Forðastu fótaflækjur
Passaðu að velja stólfætur sem passa við borðfæturna – til að húsgögni rekist ekki saman. Það er líka mikilvægt að hafa 63 sentimetra laust pláss undir borðplötunni til að koma í veg fyrir að hnén rekist í borðrammann og líka til að borðfæturnir eða krossstífur rekist ekki í stólfæturna. Ef þú kaupir tilbúið sett frá okkur hafa innnanhússhönnuðirnir gert ráð fyrir þessu.
Réttu hjólin fyrir réttu gólfin
Snúningsstólar á hjólum bjóða upp á meira frelsi til að hreyfa sig á fundum. Skoðaðu hjólin – eru þetta réttu hjólin fyrir gólfið í fundarherberginu? Góð þumalputtaregla: mjúk hjól fyrir hörð gólf og hörð hjól fyrir mýkri eða teppalögð gólf.
Gerðu ráð fyrir öllum líkamsgerðum
Hver er lögun, breidd og burðarþol stólanna sem þú velur? Þar sem þú ert ekki eina manneskjan sem mun nota stólana í fundarherberginu er mikilvægt að taka tillit til allra mögulegra líkamsgerða og vaxtarlags. Hvorki starfsfólki eða gestum ætti að líða illa í stólnum.
Margföldunaráhrifin
Hafðu margföldunaráhrifin í huga þegar þú velur á milli ólikra gerða af stólum og áklæðum. Hvernig tekur stóllinn sem þú ert að hugsa um sig út í hóp með öðrum svipuðum stólum? Litir virka sterkari í fjöldanum á meðan minna fer fyrir forminu. Húsgögn í ljósum litum virðast léttari og taka minna pláss í rýminu. Prófaðu þig áfram með sjónræn áhrif eftir stærð rýmisins! Það ber minna á blettum á dökku áklæði en ljósir þræðir og ryk verða kannski meira áberandi.

Nýtískulegt & Stílhreint
Að innrétta skrifstofu getur verið raunveruleg áskorun og mikil fjárfesting. Til að auðvelda ferlið hefur AJ þróað Nýtískulegt & Stílhreint, tilbúna stílhugmynd með fullbúnum húsgagnasamsetningum sem allar eru tilbúnar á lager.



