Með VSK
Góð þjónusta14 daga skilafrestur7 ára ábyrgð
Rólegt & samstillt

Rólegt & samstillt – búningsherbergi sem róar hugann

Litasamsetningar með bláum tónum skapa búningsherbergi sem gefur til kynna ró, jafnvægi og áreiðanleika. Það blandar hugvitsamlegum eiginleikum við friðsælt andrúmsloft. Hreinum og óhreinum fötum er haldið aðskildum, skógeymslan dregur í sig óhreinindi við innganginn og loftræstir skápar halda fötunum ferskum. Þetta er búningsherbegi þar sem rólegheit og skipulag ráða ríkjum, sem er fullkomið fyrir vinnustaði sem gera miklar kröfur um hreinlæti og stöðugleika.
Þessu búningsherbergi er hugvitsamlega skipt niður í þrjú svæði sem stuðla að hreinlæti, skipulagi og einfaldleika í notkun. Við innganginn eru vegghengdar skóhillur sem taka til sín óhreinindi og rusl á meðan þvottakörfur og hillur halda hreinum og óhreinum fötum aðskildum, sem er nauðsynlegt fyrir hreinlæti starfsfólksins. Fataskiptasvæðið er búið loftræstum skápum, bekkjum og aukalegum skógeymslum sem gera fataskiptin auðveld og þægileg. Þriðja svæðið býður upp á þægileg sæti þar sem hægt er að hvíla sig og endurnærast, ásamt veggklukku, tilkynningatöflu og sorpflokkunartunnum sem einfalda allt skipulag og samskipti.
Áherslan á hreinlæti í búningsklefanum hefst strax við innganginn. Þegar allt hefur sinn stað verður léttara að halda svæðinu hreinu og einbeita sér að vinnudeginum. Veggfestur skóskápur losar um gólfpláss og safnar í sig í óhreinindum og raka. Hillur fyrir hreinan þvott og þvottavagnar fyrir óhreinan þvott gera alla meðferð á þvotti einfaldari og þrifalegri.

Hagnýtar lausnir:
  • ENTRY skóskápurinn losar um gólfpláss og safnar í sig óhreinindum.
  • MIX hillusamstæðan og þvottavagn halda hreinum og óhreinum þvotti aðskildum.
  • EVERGREEN gerviplantan stuðlar að ró og vellíðan án þess að þarfnast umhirðu.
CLASSIC COMBO skáparnir eru hannaðir fyrir aðstæður þar sem gerðar eru miklar hreinlætiskröfur. Þeir eru með aðskilin hólf fyrir hrein og óhrein föt en eru bara með einn lás. Góð loftræsting og hallandi þak stuðla að því að fötin haldist hrein og fersk lengur. Undir bekknum er innbyggð skógeymsla sem losar um pláss á gólfinu og gerir auðveldara að halda því hreinu.
Hagnýtar lausnir:
  • CLASSIC COMBO fataskápurinn heldur hreinum og óhreinum fötum aðskildum.
  • Skóhilla fyrir bekk heldur gólfinu hreinu og einfaldar hreingerningar.
Friðsælt og aðskilið svæði skiptir miklu máli á vinnustöðum þar sem mikið er um að vera. Með einingahúsgögnum úr VARIETY vörulínunni geturðu sett saman sveigjanleg sæti fyrir þá sem þurfa á hvíldarstund að halda. Stílhreinar sorpflokkunartunnur halda umhverfinu snyrtilegu og tilkynningatafla gerir auðvelt að koma skilaboðum á framfæri. Hver þáttur er hannaður til að skapa snyrtilegt og skipulagt starfsmannarými þar sem allt hefur sinn stað.
Hagnýtar lausnir:
  • VARIETY bekkir og stólar bjóða upp á sveigjanlega hvíldarstaði.
  • NORTON endurvinnslutunna gerir auðvelt að helda herberginu hreinu.
  • TIME veggklukkan og ELIZA tilkynningataflan gera auðvelt að sjá hvað tímanum líður og koma skilaboðum á framfæri.

Uppgötvaðu fleiri hugmyndir fyrir búningsherbergið

Ástríða og orka

Ástríða og orka

Verðlaunuð hönnun í rauðum tónum skapar svipmikið búningsherbergi með mikilli orku og sportlegum blæ.Sjá hugmynd
Látlaust og skipulagt

Látlaust og skipulagt

Gráir tónar og jarðbundin smáatriði skapa rólegt og skilvirkt umhverfi þar sem röð og regla, skipulag og hreinlæti eru í fyrirrúmi.Sjá hugmynd
Notalegt og öruggt

Notalegt og öruggt

Dökkar og ljósar andstæður skapa notalega stemningu með öruggum geymlsulausnum, þægindum og hugvitsamlegum smáatriðum sem fullkomna heildina.Sjá hugmynd
Hlýtt og gleðilegt

Hlýtt og gleðilegt

Litrík smáatriði og viður skapa notalegt og aðlaðandi andrúmsloft fyrir starfsfólkið að skipta um föt og eiga í samskiptum.Sjá hugmynd

Fáðu aðstoð frá sérfræðingum okkar í innanhússhönnun!

Við hjá AJ Vörulistanum erum ávallt tilbúin að aðstoða þig við að finna innréttingalausn sem hentar þínum vinnustað og þínum þörfum. Hafðu samband ef þú þarft ráðgjöf varðandi val um réttu lausnina, vilt fá innblástur eða fá upplýsingar um hvaða lausnir henta best fyrir þitt rými. Við hjálpum þér að skoða möguleikana og finna þá lausn sem hentar þér best.
Tegund stofnunar
Lýstu máli þínuViðhengi
Með því að smella á "Senda" staðfesti ég að ég hef kynnt mér persónuverndarstefnuna.