Með VSK
Góð þjónusta14 daga skilafrestur7 ára ábyrgð
Ástríða & orka

Ástríða & orka – búningsherbergi sem veitir þér hvatningu

Rauður litur tengist styrk, hraða og orku – eiginleikum sem endurspeglast í hverju smáatriði í þeassri hugmynd. Verðlaunaðir skápar, nýtískuleg hönnun og úthugsuð smáatriði gera þetta að rými sem hvetur til hreyfingar og samveru. Hér mætast glæsileg hönnun og hugvitsamlegir eiginleikar, frá stólum og borðum til skóhillna með lekabökkum. Þettar er búningsherbergi sem fyllir þig orku, bæði fyrir vinnu og eftir að vinnudeginum lýkur.
Fataskiptasvæðið er búið verðlaunuðum, loftræstum skápum, hugvitsamlegum geymslulausnum og slitsterkum bekkjum sem gera auðvelt og þægilegt að skipta um föt. Á samverusvæðinu má finna húsgögn sem samræmast rauðum tónum rýmisins og hvetja til félagsskapar og samræðna.
CREATE ENERGY-skáparnir sameina verðlaunaða hönnun og vandaða byggingu, með loftræstingu að ofan, neðan og í hurðinni, hagnýtum innréttingum og áferð sem fær innblástur frá sportbílum. Skáparnir eru afhentir með fótum og hægt er að bæta við þá undirstöðum sem einfalda þrif. Skóhillur á veggjum og endingargóðir bekkir stuðla að hreinu, þægilegu og viðhaldsfríu umhverfi.

Hagnýtar lausnir:
  • CREATE ENERGY-skápur með úthugsuðum innréttingum og glæsilegri áferð.
  • ENTRY skóhillan losar um gólfpláss og dregur í sig óhreinindi.
  • CONNECT bekkurinn er slitsterkur og auðveldur í þrifum, sem er tilvalið fyrir aðstæður þar sem hreinlæti er mikilvægt.
Miðpunktur búningsherbergisins er svæði sem hvetur fólk til að tengjast og slaka á. Húsgögn í samræmdum litum ljá andrúmsloftinu yfirbragð samheldni og borðin og stólarnir fylgja sama hönnunarstíl. Þetta hagnýta en samt notalega svæði stuðlar að samskiptum bæði fyrir og eftir vinnu.

Hagnýtar lausnir:
  • CONNECT borðið passar við aðra innviði herbergisins og hvetur til samskipta.
  • RIO stólinn endurspeglar rauða tóna rýmisins og bindur heildina saman.

Uppgötvaðu fleiri hugmyndir fyrir búningsherbergið

Látlaust og skipulagt

Látlaust og skipulagt

Gráir tónar og jarðbundin smáatriði skapa rólegt og skilvirkt umhverfi þar sem röð og regla, skipulag og hreinlæti eru í fyrirrúmi.Sjá hugmynd
Rólegt og samstillt

Rólegt og samstillt

Bláir litir og sniðugar geymslulausnir þar sem hreinum og óhreinum fötum er haldið aðskildum skapa rólegar og snyrtilegar aðstæður þar sem vinnudagurinn getur byrja og endað í góðu jafnvægi.Sjá hugmynd
Notalegt og öruggt

Notalegt og öruggt

Dökkar og ljósar andstæður skapa notalega stemningu með öruggum geymlsulausnum, þægindum og hugvitsamlegum smáatriðum sem fullkomna heildina.Sjá hugmynd
Hlýtt og gleðilegt

Hlýtt og gleðilegt

Litrík smáatriði og viður skapa notalegt og aðlaðandi andrúmsloft fyrir starfsfólkið að skipta um föt og eiga í samskiptum.Sjá hugmynd

Fáðu aðstoð frá sérfræðingum okkar í innanhússhönnun!

Við hjá AJ Vörulistanum erum ávallt tilbúin að aðstoða þig við að finna innréttingalausn sem hentar þínum vinnustað og þínum þörfum. Hafðu samband ef þú þarft ráðgjöf varðandi val um réttu lausnina, vilt fá innblástur eða fá upplýsingar um hvaða lausnir henta best fyrir þitt rými. Við hjálpum þér að skoða möguleikana og finna þá lausn sem hentar þér best.
Tegund stofnunar
Lýstu máli þínuViðhengi
Með því að smella á "Senda" staðfesti ég að ég hef kynnt mér persónuverndarstefnuna.