Með VSK
Góð þjónusta14 daga skilafrestur7 ára ábyrgð
Hlýlegt & lífleg

Hlýlegt & líflegt – búningsherbergi sem gleður

Þetta búningsherbergi er hannað til að skapa hlýja og notalega stemningu, með gulum tónum og mjúkum viðar- og textílefnum. Rannsóknir sýna að gulur litur er oft tengdur sólskini, gleði og orku, sem er sú tilfinning sem við viljum ná fram í þessu rými. Hugvitsamleg atriði eins og samverurými með sætum fléttast óaðfinnanlega saman við snjallar geymslulausnir og hljóðdeyfandi húsgögn og skapa þannig rými sem er jafn notalegt og það er hagnýtt.
Um leið og þú gengur inn finnurðu að búningsklefinn er friðsæll og vel skipulagður. Við innganginn eru vegghengdar skóhillur, lekabakkar og endurvinnslutunnur sem halda rýminu hreinu og lausu við rusl á meðan hljóðdeyfandi einingar halda hávaða í lágmarki og skapa ró. Á fataskiptasvæðinu eru CURVE fataskápar með mjúkum, öldóttum útlínum og smáhlutageymslu í hurðum. Á milli skápanna eru slitsterkir bekkir þar sem hægt er að fá sér sæti á meðan skipt er um föt. Þriðja svæðið er hannað fyrir hvíldarstundir, hvort sem þú ert að bíða eftir samstarfsmanni, ná andanum eða bara hvíla þig í smástund.
Vegghengdar skóhillur, hljóðdeyfandi þil og sveigjanlegar lausnir gera innganginn mjög aðlaðandi og snyrtilegan. Það gerir auðvelt að njóta búningsherbergisins, sérstaklega þegar litasamsetningar og hljóðumhverfi vinna saman að því að skapa þægilegt umhverfi sem hefur góð áhrif á starfsfólkið. Lekabakkar draga í sig óhreinindi og ruslakörfur gera auðvelt að ganga frá rusli. Allt miðar þetta að því að hafa góð fyrstu áhrif og gera byrjun vinnudagsins ánægjulega.

Hagnýtar lausnir:
  • ENTRY skóhillan losar um gólfpláss og tekur við óhreinindum
  • Hljóðdempandi POLY þilin draga úr hávaða og skapar næði.
  • TYSON ruslakarfan auðveldar sorpflokkun og heldur rýminu snyrtilegu.
CURVE skáparnir einkennast af glæsilega ávölum útlínum með málmáferð ásamt snjöllum lausnum eins og hattahillum, fataslám og smáhlutageymslum í skáphurðunum. Hvelfdar hurðirnar gefa þeim nútímalegt og glæsilegt yfirbragð og loftræstigöt við topp og botn skápsins hjálpa við að halda fötunum ferskum. Sterkbyggðir bekkir á milli skápanna auka þægindin og gera heildarmyndina fegurri.

Hagnýtar lausnir:
  • CURVE-skáparnir eru með geymsluhólf í hurðinni og halda fötunum ferskum.
  • CONNECT bekkirnir eru slitsterkir og auðveldir í þrifum, sem er tilvalið fyrir aðstæður þar sem hreinlæti er mikilvægt.
  • VARIETY bekkirnir eru þægilegir og stílhreinir í útliti.
Þetta svæði er hannað til að starfsfólkið geti slakað á, talað saman eða beðið eftir samstarfsfólkinu í þægindum. Mjúkir hægindastólar, sófaborð og þægileg áklæði skapa notalega stemningu á meðan húsgögn með innbyggðu geymsluplássi nýtast til að skipta upp rýminu en einnig sem staður til að leggja frá sér hluti. Hér er nægt pláss fyrir bæði samræður og afslöppun í ró og næði.

Hagnýtar lausnir:
  • COMFY  húsgagnasettið og MELVIN gólfmottan mynda saman náttúrulegan
  • QBUS bókahillan virkar sem skilrúm
  • IRIS sófaborðið tengir húsgögnin saman í afslappaða heild.

Uppgötvaðu fleiri hugmyndir fyrir búningsherbergið

Látlaust og skipulagt

Látlaust og skipulagt

Gráir tónar og jarðbundin smáatriði skapa rólegt og skilvirkt umhverfi þar sem röð og regla, skipulag og hreinlæti eru í fyrirrúmi.Sjá hugmynd
Rólegt og samstillt

Rólegt og samstillt

Bláir litir og sniðugar geymslulausnir þar sem hreinum og óhreinum fötum er haldið aðskildum skapa rólegar og snyrtilegar aðstæður þar sem vinnudagurinn getur byrja og endað í góðu jafnvægi.Sjá hugmynd
Notalegt og öruggt

Notalegt og öruggt

Dökkar og ljósar andstæður skapa notalega stemningu með öruggum geymlsulausnum, þægindum og hugvitsamlegum smáatriðum sem fullkomna heildina.Sjá hugmynd
Ástríða og orka

Ástríða og orka

Verðlaunuð hönnun í rauðum tónum skapar svipmikið búningsherbergi með mikilli orku og sportlegum blæ.Sjá hugmynd

Fáðu aðstoð frá sérfræðingum okkar í innanhússhönnun!

Við hjá AJ Vörulistanum erum ávallt tilbúin að aðstoða þig við að finna innréttingalausn sem hentar þínum vinnustað og þínum þörfum. Hafðu samband ef þú þarft ráðgjöf varðandi val um réttu lausnina, vilt fá innblástur eða fá upplýsingar um hvaða lausnir henta best fyrir þitt rými. Við hjálpum þér að skoða möguleikana og finna þá lausn sem hentar þér best.
Tegund stofnunar
Lýstu máli þínuViðhengi
Með því að smella á "Senda" staðfesti ég að ég hef kynnt mér persónuverndarstefnuna.