- AJ Vörulistinn
- Blog
- Hugtak
- Vinnustaðurinn
- Búningsherbergi þar sem öllum líður vel

Búningsherbergi þar sem öllum líður vel
Búningsklefinn er fyrsti og síðasti staðurinn sem margir eiga leið um á vinnustaðnum. Fólk með mismunandi hlutverk, þarfir og persónuleika kemur þar saman og því eru gerðar til hans strangar kröfur. Án vel úthugsaðrar innanhússhönnunar er hætta á að búningsherbergið verði óþrifalegt, ópersónulegt og ófullnægjandi. Þess vegna höfum við þróað nokkrar hugmyndir sem innihalda allt frá skápum og bekkjum til lita og efna sem saman vinna að því að skapa umhverfi þar sem öllu starfsfólkinu finnst það vera velkomið, sama hvert starf þess er eða á hvaða vakt það vinnur.

Látlaust og skipulagt
Gráir tónar og jarðbundin smáatriði skapa rólegt og skilvirkt umhverfi þar sem röð og regla, skipulag og hreinlæti eru í fyrirrúmi.Sjá hugmynd
Rólegt og samstillt
Bláir litir og sniðugar geymslulausnir þar sem hreinum og óhreinum fötum er haldið aðskildum skapa rólegar og snyrtilegar aðstæður þar sem vinnudagurinn getur byrja og endað í góðu jafnvægi.Sjá hugmynd
Notalegt og öruggt
Dökkar og ljósar andstæður skapa notalega stemningu með öruggum geymlsulausnum, þægindum og hugvitsamlegum smáatriðum sem fullkomna heildina.Sjá hugmynd
Hlýtt og gleðilegt
Litrík smáatriði og viður skapa notalegt og aðlaðandi andrúmsloft fyrir starfsfólkið að skipta um föt og eiga í samskiptum.Sjá hugmynd
Ástríða & orka
Verðlaunuð hönnun í rauðum tónum skapar svipmikið búningsherbergi með mikilli orku og sportlegum blæ.Sjá hugmyndVið aðstoðum þig með ánægju!
Sérfræðingar okkar í innanhússhönnun eru til staðar til að leiðbeina þér í gegnum allt ferlið, allt frá efnisvali og geymslulausnum til skipulags og vali á litum. Hvort sem þú ert að endurnýja núverandi búningsklefa eða innrétta nýjan frá grunni, þá hjálpum við þér að skapa hagnýtt, öruggt og aðlaðandi umhverfi þar sem öllum starfsmönnum líður vel. Hafðu samband og við finnum bestu lausnina saman.
