Með VSK
Góð þjónusta14 daga skilafrestur7 ára ábyrgð
Hlutlaust & skipulagt

Hlutlaust & skipulagt – Búningsherbergi sem gerir vinnudaginn aðeins auðveldari

Í þessari hönnun fara rólegheit, skipulag og notagildi hönd í hönd. Grár grunnur og náttúrulitir skapa jafnvægi í herberginu sem hentar mörgum notendum, óháð því hverjar þarfir þeirra eru, hvert starf þeirra er eða á hvaða vakt þeir vinna. Hér snýst allt um skýrt skipulag, sniðugar geymslulausnir og hugvitsamlega hönnun sem gerir auðvelt að bæði skipta um föt og gera hreint. Öruggt og vel skipulagt rými sem heldur vinnudeginum í jafnvægi.
Til að koma á skýru skipulagi í búningsherberginu er því skipt upp í þrjú svæði: fataskiptasvæði, geymslusvæði og hvíldarsvæði. Fataskiptasvæðið, með snögum, fatahengjum og skógeymslum losar um gólfpláss og heldur rýminu snyrtilegu. Geymslusvæðið er með loftræstum fataskápum og bekkjum sem gera fataskiptin auðveld og örugg. Við innganginn er svo friðsælt svæði með hljóðdempandi húsgögnum þar sem hægt er að hvíla sig eða eiga samtöl í ró og næði. Saman skapa þessi svæði vel úthugsað flæði, frá því fæti er fyrst stigið inn í herbergið og þar til farið er út.
Veggfest hattahilla með gott geymslupláss, snagar og skóhillur skapa snyrtilegt og vel skipulagt svæði við innganginn. Þar er tilvalið að hengja upp blaut vinnuföt og yfirhafnir á meðan gólfið helst hreint og þrifalegt. Slitsterkir bekkir úr viðarlíki bjóða upp á þægilegan stað til að sitja á meðan skipt er um föt ásamt því að vera auðveldir í þrifum, jafnvel þótt umhverfið sé krefjandi og álagið mikið.

Hagnýtar lausnir:
  • QUARTZ hattahillan meö snagalista er með pláss fyir bæði föt og persónulega
  • STADIUM bekkurinn með innbyggðri skóhillu heldur utan um skóna og
  • TWIN dyramottan dregur í sig óhreinindi og raka við dyrnar.
CAMPUS-skáparnir sem hannaðir eru með innblæstri frá fortíðinni, eru með innbyggða loftræstingu sem heldur fötunum hreinum og ferskum yfir daginn. Innbyggðir miðavasar gera auðvelt að merkja skápana og aðskilið fataskiptasvæði með bekk og snagalista stuðla að náttúrulegu gegnumflæði. Hálkuvarin motta sem liggur frá sturtunni að skápnum forðar slysum og auðveldar hreingerningar.

Hagnýtar lausnir:
  • CAMPUS skápurinn með náttúrulegri loftræstingu og merkimiðahöldurum er fullkominn fyrir búningsklefa sem margir þurfa að nota.
  • Sittbänken STADIUM bekkur með snagalista býður upp á þægilegan stað til að skipta um föt.
  • Gólfmotta úr PVC-plasti er hálkuvarin og heldur gólfinu hreinu.
Vel hannaður búningsklefi býður upp á meira en bara gott skipulag og snyrtileika. Þar má einnig finna svæði þar sem hægt er að slaka á í ró og næði í vinnuhléi eða á meðan beðið er eftir samstarfsmanni. Hann er innréttaður með hljóðdeyfandi húsgögnum og mjúkum og þægilegum sætum sem draga úr hávaða og skapa gott næði.

Hagnýtar lausnir:
  • GRACE CLEAR SOUND hægindastóllinn og GRACE hljóðdeyfandi þilið hjálpa við að skapa friðsælt horn í herberginu.
  • MELROSE sorptunnan gerir endurvinnsluna einfaldari.

Uppgötvaðu fleiri hugmyndir fyrir búningsherbergið

Ástríða og orka

Ástríða og orka

Verðlaunuð hönnun í rauðum tónum skapar svipmikið búningsherbergi með mikilli orku og sportlegum blæ.Sjá hugmynd
Rólegt og samstillt

Rólegt og samstillt

Bláir litir og sniðugar geymslulausnir þar sem hreinum og óhreinum fötum er haldið aðskildum skapa rólegar og snyrtilegar aðstæður þar sem vinnudagurinn getur byrja og endað í góðu jafnvægi.Sjá hugmynd
Notalegt og öruggt

Notalegt og öruggt

Dökkar og ljósar andstæður skapa notalega stemningu með öruggum geymlsulausnum, þægindum og hugvitsamlegum smáatriðum sem fullkomna heildina.Sjá hugmynd
Hlýtt og gleðilegt

Hlýtt og gleðilegt

Litrík smáatriði og viður skapa notalegt og aðlaðandi andrúmsloft fyrir starfsfólkið að skipta um föt og eiga í samskiptum.Sjá hugmynd

Fáðu aðstoð frá sérfræðingum okkar í innanhússhönnun!

Við hjá AJ Vörulistanum erum ávallt tilbúin að aðstoða þig við að finna innréttingalausn sem hentar þínum vinnustað og þínum þörfum. Hafðu samband ef þú þarft ráðgjöf varðandi val um réttu lausnina, vilt fá innblástur eða fá upplýsingar um hvaða lausnir henta best fyrir þitt rými. Við hjálpum þér að skoða möguleikana og finna þá lausn sem hentar þér best.
Tegund stofnunar
Lýstu máli þínuViðhengi
Með því að smella á "Senda" staðfesti ég að ég hef kynnt mér persónuverndarstefnuna.