Með VSK
Góð þjónusta14 daga skilafrestur7 ára ábyrgð
Notalegt & öruggt

Notalegt & öruggt – búningsherbergi þar sem stílhrein hönnun og snjallar geymslulausnir mætast

Þessi hugmynd sameinar stílhreina hönnun og snjallar lausnir til að skapa búningsherbergi sem er bæði öruggt og notalegt. Dökkir og ljósir litir mynda andstæður sem gefa rýminu látlausan blæ á meðan hagnýt smáatriði eins og fyrirferðarlítið geymslupláss, þægileg sæti og svæði fyrir afslöppun gera vinnudaginn auðveldari. Gott skipulag og hugvitsamleg hönnun skapa umhverfi þar sem auðvelt er að njóta hversdagsins.
Til að halda jafnvægi á milli notagildis og þæginda er rýminu skipt upp í þrjú svæði. Við innganginn eru öryggiskápar fyrir persónuleg verðmæti og skógeymsla sem heldur svæðinu snyrtilegu. Þægileg sæti með innbyggðu geymsluplássi gera auðvelt að setjast niður og fara í og úr skónum.
A fataskiptasvæðinu er rýmið fullnýtt með Z-fataskápum sem spara pláss og þægilegum sætum sem gefa því aðlaðandi yfirbragð. Þriðja svæðið leggur áherslu á stíl og þægindi, með speglum, ruslakörfum og plöntum sem stuðla að fegurri heildarmynd.
Þetta er svæði sem sameinar öryggi og þægindi. Litlir öryggisskápar bjóða upp á örugga geymslu fyrir verðmæti á meðan þú ert á æfingu eða við vinnu. Þar við hliðina má finna bæði skóhillu og sæti með geymsluplássi, sem gerir auðveldara að fara í og úr skónum, halda svæðinu snyrtilegu og koma í veg fyrir að óhreinindi berist inn í húsið. Það er hagnýt lausn sem ræstingafólk, og þeir sem eru berfættir, kunna að meta.
Hagnýtar lausnir:
  • CUBE verðmætaskápur bjóða upp á örugga geymslu fyrir lykla, veski og aðra smáhluti.
  • QBUS sæti með sessum og geymsluplássi gera auðvelt að hafa fataskipti.
  • ENTRY, vegghengd skóhilla, losar um gólfpláss og heldur óhreinindum í burtu.
CLASSIC Z-skáparnir bjóða upp á hugvitsamlegt og fyrirferðarlítið geymslupláss með stílhreinu útliti. Einstök Z-lögun þeirra gerir tveimur einstaklingum mögulegt að deila einni skápeiningu án að þröngt verði um þá. Skáparnir standa á undirstöðum með náttúrulegri loftræstingu og þeim fylgja sæti sem auka þægindin og stuðla að notalegri heildarmynd.

Hagnýtar lausnir:
  • CLASSIC Z-skápar gera ráð fyrir tveimur notendum. Þeir standa á götuðum undirstöðum með náttúrulegri loftræstingu.
  • Sæti úr VARIETY vörulínunni gera fataskiptin þægilegri og einfaldari.
Á þriðja svæðinu snýst allt um litlu hlutina sem skipta máli – hvort sem það er að hafa sig til og laga hárið, henda rusli eða bara taka sér hvíld. Bættu við hagnýtum speglum, skápum og ruslakörfum til halda rýminu snyrtilegu á meðan ofnæmisvænar gerviplöntur bæta gróðri við rýmið, án þess að þarfnast neins viðhalds. Þetta er afslappað og vel hannað rými þar sem hönnun og þægindi sameinast í áhrifaríku rými.

Hagnýtar lausnir:

Uppgötvaðu fleiri hugmyndir fyrir búningsherbergið

Ástríða og orka

Ástríða og orka

Verðlaunuð hönnun í rauðum tónum skapar svipmikið búningsherbergi með mikilli orku og sportlegum blæ.Sjá hugmynd
Rólegt og samstillt

Rólegt og samstillt

Bláir litir og sniðugar geymslulausnir þar sem hreinum og óhreinum fötum er haldið aðskildum skapa rólegar og snyrtilegar aðstæður þar sem vinnudagurinn getur byrja og endað í góðu jafnvægi.Sjá hugmynd
Látlaust og skipulagt

Látlaust og skipulagt

Gráir tónar og jarðbundin smáatriði skapa rólegt og skilvirkt umhverfi þar sem röð og regla, skipulag og hreinlæti eru í fyrirrúmi.Sjá hugmynd
Hlýtt og gleðilegt

Hlýtt og gleðilegt

Litrík smáatriði og viður skapa notalegt og aðlaðandi andrúmsloft fyrir starfsfólkið að skipta um föt og eiga í samskiptum.Sjá hugmynd

Fáðu aðstoð frá sérfræðingum okkar í innanhússhönnun!

Við hjá AJ Vörulistanum erum ávallt tilbúin að aðstoða þig við að finna innréttingalausn sem hentar þínum vinnustað og þínum þörfum. Hafðu samband ef þú þarft ráðgjöf varðandi val um réttu lausnina, vilt fá innblástur eða fá upplýsingar um hvaða lausnir henta best fyrir þitt rými. Við hjálpum þér að skoða möguleikana og finna þá lausn sem hentar þér best.
Tegund stofnunar
Lýstu máli þínuViðhengi
Með því að smella á "Senda" staðfesti ég að ég hef kynnt mér persónuverndarstefnuna.