- AJ Vörulistinn
- Blog
- Hugtak
- Vinnustaðurinn
- Mötuneyti
- Friðsælt & rólegt

Friðsælt & rólegt – matsalur sem heldur hávaðanum niðri
Á mörgum vinnustöðum er mötuneytið allt annað en hljóðlátt eða friðsælt. Í þessari hugmynd er áherslan lögð á hljóðumhverfið, með snjöllu efnisvali, hljóðgleypandi einingum og skýrri svæðaskiptingu sem deyfir hávaða og dregur úr streitu.

Þægileg húsgögn sem draga úr hávaða
Í mötuneytum þar sem margir koma saman er mikilvægt að huga að skynsamlegum lausnum. Húsgögnin eru valin til að skapa ró og festu í rýminu. Borð með línóleumplötum dempa glamur frá hnífapörum og glösum og sleðafætur undir stólunum draga úr hávaða sem myndast þegar þeir eru dregnir eftir gólfinu. Þægilegir hægindastólar og bólstraðir skemlar bjóða upp á bæði fjölbreytni og þægindi, á meðan matt yfirborð og ávalar útlínur skapa mýkra yfirbragð.
Hagnýtar lausnir:
- PLURAL borðið með hljóðdempandi línóleumplötu dregur úr glamurhljóðum.
- DAWSON stóllinn með arma og sleðafætur er upphengjanlegur og dregur úr skraphljóðum.
- VARIETY gólfpúðinn býður upp á aðeins mýkra sæti.
- START sófinn er með dökkbrúnt áklæði og er bæði þægilegur og notalegur í útliti.
- HARMONY hægindastóllinn og MOOD sófaborðið mynda saman aðskilda setustofu fyrir kyrrlátari stundir.




Innanhússhönnun sem róar hugann
Hér eru hljóðgleypandi þil á bæði veggnum og í loftinu notuð til að draga úr endurómi og deyfa hávaða. Þilin sem hanga úr loftinu virka sem skilrúm sem gefa til kyuna aðskilin svæði innan rýmisins. Mildir litir, mjúk textílefni og viður gefa umhverfinu róandi og notalegan blæ.
Hagnýtar lausnir:
- Dropalaga hljóðgleypandi veggþilið POLY fangar hljóð og bætir við mjúkum formum.
- SATELLITE loftþilið stuðlar að hljóðlátara umhverfi.
- CIRCLES hangandi þilið virkar sem hljóðdempandi skilrúm.
- MELVIN teppið deyfir hávaða og gefur rýminu mýkri heildarmynd.



Vörur fyrir hugmyndina friðsælt og rólegt mötuneyti
Uppgötvaðu fleiri hugmyndir fyrir mötuneytið

Sveigjanlegt & aðlaðandi
Snjallt val á húsgögnum gerir auðvelt að breyta til og aðlaga rýmið fyrir meira en bara hádegismat.Sjá hugmynd
Rólegt & náttúrulegt
Grænir litir, náttúruleg hráefni og mildir tónar stuðla að afslöppuðu andrúmslofti í matsalnum, sem er fullkomið til að hvílast og ná orku.Sjá hugmynd
Slitsterkt & hagnýtt
Auðþrífanlegt yfirborð og slitsterk húsgögn gera að verkum að mötuneytið þolir óhreinindi, slit og álag sem fylgir daglegri notkun.Sjá hugmynd
Notalegt & afslappað
Mjúk og þægileg sæti og mildir litir skapa setustofustemningu í salnum sem hentar bæði fyrir hádegismatinn og fyrir vinnu fjarri skrifborðinu.Sjá hugmynd
Skapandi & félagslegt
Bjartir litir, skemmtileg form og sveigjanlegt skipulag stuðla að líflegu umhverfi fyrir samvinnu og samskipti.Sjá hugmyndFáðu aðstoð frá sérfræðingum okkar í innanhússhönnun!
Við hjá AJ Vörulistanum erum ávallt tilbúin að aðstoða þig við að finna innréttingalausn sem hentar þínum vinnustað og þínum þörfum. Hafðu samband ef þú þarft ráðgjöf varðandi val um réttu lausnina, vilt fá innblástur eða fá upplýsingar um hvaða lausnir henta best fyrir þitt rými. Við hjálpum þér að skoða möguleikana og finna þá lausn sem hentar þér best.
Hugmynd að mötuneyti
Sjá hugmynd
Hugmynd að búningsherbergi
Sjá hugmynd





















