Með VSK
Góð þjónusta14 daga skilafrestur7 ára ábyrgð
Mötuneyti

Betra mötuneyti gerir daginn betri

Mötuneytið er ekki bara staður til að borða. Það veitir starfsfólkinu hvíld frá tölvuskjám, fundum og verkefnum dagsins. Það er staður til að slaka á, hvort sem það er á spjalli við vinnufélagana eða í ró og næði. Á mörgum vinnustöðum er mötuneytið hins vegar hávaðasamt og óreiðukennt, sem gerir starfsfólkinu erfitt að ná að hvílast. Þess vegna höfum við sett saman sex hugmyndir að mötuneytum sem eru sniðnar að mismunandi þörfum, aðstæðum og hönnunarstílum. Með endingargóðum húsgögnum, hugvitsamlegu skipulagi og áherslu á bæði þægindi og notagildi höfum við skapað svæði þar sem starfsfólkinu líður vel og nær að endurnýja starfsorkuna. Þegar starfsfólkinu líður vel nær það meiri afköstum í vinnunni.