Skrifborðshjól, svart
Vörunúmer
23400
116.334
Verð með VSK
- Þú getur unnið og hjólað á sama tíma!
- Örvar blóðrásina
- Hljóðlátt og meðfærilegt
Þú getur unnið og æft á sama tíma! Með því að nota æfingahjól við skrifborðið örvar þú blóðrásina og brennir hitaeiningum, sem er jákvætt fyrir bæði heilsuna og afköst við vinnuna. Hjólið er hljóðlátt og sýnir bæði tíma og vegalengd.
- Upplýsingar um vöru
- Fylgihlutir
- Greiðsla og afhending
Nánari vörulýsing
Skiptu á milli þess að sitja, standa eða hjóla við vinnuna!
Þú þarft ekki að æfa á fullum hraða til að njóta góðs af því að hjóla: lítill hraði er nóg til að koma blóðinu á hreyfingu.
Kyrrseta á skrifstofustól gerir þig þreyttan mun fljótar. Með því að standa upp færðu aukna orku þar sem það hvetur til meiri hreyfingar. Þú getur gengið enn lengra með því að hjóla, sem er fullkomin viðbót við vinnudaginn: Það gefur líkamanum meiri orku, eykur súrefnismagnið, brennir fleiri hitaeiningum og bætir blóðflæðið. Það hefur ekki aðeins jákvæð áhrif á heilsuna heldur bætir einbeitinguna að auki.
Hjólið er með hæðarstillanlegt sæti sem hentar einstaklingum sem eru frá 155 til 195 cm að hæð og vega allt að 135 kg. Til að geta notað hjólið á sem bestan hátt mælum við með að þú notir það með skrifborði sem má sitja og standa við. Lægsta hæð borðplötu sem það má nota við er 100 cm. Mótstaða fótstigsins er stillanleg og skjárinn sýnir tímalengd, hraða, vegalengd og fjölda hitaeininga sem brenndar eru.
Innbyggð hjól gera auðvelt að færa hjólið til svo starfsmenn geti skipst á að nota það!
Að sjálfsögðu geturðu ráðið hversu mikið þú vilt nota hjólið. Sum verkefni er auðveldara að vinna við sitjandi eða standandi. Ef þú þarft að einbeita þér sérstaklega vel geturðu alltaf hætt að hjóla og setið kyrr - og byrjað aftur að hjóla þegar þú ert tilbúin/n. Hjólið er mjög hljóðlátt og truflar því ekki samstarfsmenn þína með hávaða.
-
Fylgiskjöl
Vörulýsing
Lengd: | 750 mm |
Breidd: | 470 mm |
Lágmarkshæð: | 800 mm |
Hámarkshæð: | 900 mm |
Hámarksþyngd: | 110 kg |
Litur: | Svartur |
Þyngd: | 16,8 kg |
Samsetning: | Ósamsett |
Ábyrgð: | 3 ár |
Lesa meira
Fylgihlutir
Sjá meira