Með VSK
Góð þjónusta14 daga skilafrestur7 ára ábyrgð

QBUS – geymslulausnir fyrir allan vinnustaðinn

Með QBUS húsgagnalínunni okkar, sem samanstendur af sveigjanlegum geymsluhúsgögnum, geturðu auðveldlega hannað vel skipulagðan vinnustað! Húsgögnin í þessari vörulínu eru hönnuð til að passa saman og vegna þess að þau byggjast á einingum er auðvelt að stækka geymsluplássið eftir því sam þarfir þínar aukast – hvort sem það er á skrifstofunni, í móttökunni eða í fundarherberginu.

QBUS fyrir skrifstofuna

Hvort sem þig vantar lítið geymslupláss við skrifborðið fyrir skrifstofuvörur eða persónulega muni eða fullbúna geymslulausn fyrir alla skrifstofuna er QBUS vörulínan fullkominn valkostur. Settu einingarnar saman þannig að þú getir hámarkað geymsluplássið fyrir þig – og samstarsfólkið.

Með QBUS hefurðu alla möguleika á að hanna skrifstofu sem er bæði sveigjanleg og aðgengileg. Í þessari húsgagnalínu eru klassísk geymsluhúsgögn með hillum og skápum en einnig samsett húsgögn með þægilegum sætum og hagnýtum póstflokkunareiningum. Með því að blanda saman opnum og lokuðum geymslum er auðvelt og fljótlegt að nálgast þá hluti sem þú þarft á að halda en það gefur þér líka vel skipulagt vinnurými.
Maður opnar geymsluskúffu.
Handfang fyrir skáp
Taska ofan á QBUS geymslueiningu.
Fólk mun alltaf þurfa á geymsluplássi að halda, en þörfin er ekki lengur sú sama og mun halda áfram að breytast. Við viljum vera í fararbroddi þegar kemur að því að bjóða upp á vörur fyrir vinnustaði framtíðarinnar.
Anna Helgesson, vörustjóri hjá AJ Produkter

Meiri innblástur frá QBUS

Nánari upplýsingar um QBUS!

Fyrir stóra eða litla vinnustaði, hefðbundnar skrifstofur þar sem starfsfólkið situr við hvert sitt skrifborð eða virkar skrifstofur með opnum rýmum – er QBUS geymslulína sem hægt er að aðlaga að fullu að þörfum vinnustaðarins. Lærðu meira um þessa húsgagnalínu og hvernig QBUS er augljós valkostur fyrir þig.

Lestu nánar

Maður stendur við QBUS geymsluskáp.
Nærmynd af QBUS geymsluskáp

Sæktu QBUS í BIM-models

Allar einingar úr þessari vörulínu eru fáanlegar sem BIM-models, sem kemur sér vel fyrir þig sem arkitekt, þar sem þú getur auðveldlega séð hvernig þær koma út í stafrænu umhverfi.

Lestu nánar

QBUS fyrir fundarherbergið 

Gerðu fundarherbergið að bæði skilvirku og hvetjandi vinnuumhverfi með QBUS húsgögnum. Með góðum skápum færðu gott geymslupláss fyrir allt sem verður að vera til staðar í fundarherberginu en þarf ekki allltaf að vera uppi á borðum. Eða því ekki að innrétta herbergið með hugvitsamlega samsettum húsgögnum sem bjóða upp á bæði geymslurými og þægileg aukasæti?

Í rýmum þar sem margir eiga leið um á meðan vinnudeginum stendur er þörf á geymsluplássi þar sem auðvelt er að nálgast hluti eða setja þá til hliðar eftir því sem þörf er á hverju sinni. Þú getur fundið stað fyrir fylgihluti með tússtöflunni, minnismiðablokkir, vatnskönnur og fleiri hluti í lokuðu geymslurými og haldið skrifstofunni snyrtilegri og lausri við truflanir á meðan fólk er við vinnu.
Þrír einstaklingar ræða saman í herbergi
Kona situr og talar í síma.
Nærmynd af skáphandfangi.
QBUS er vörulína með húsgagnaeiningum sem hægt er að setja saman og passa við hverja aðra, óháð gerð eða stærð.
Anna Helgesson, vörustjóri hjá AJ Produkter

Meiri innblástur frá QBUS

Nánari upplýsingar um QBUS!

Fyrir stóra eða litla vinnustaði, hefðbundnar skrifstofur þar sem starfsfólkið situr við hvert sitt skrifborð eða virkar skrifstofur með opnum rýmum – er QBUS geymslulína sem hægt er að aðlaga að fullu að þörfum vinnustaðarins. Lærðu meira um þessa húsgagnalínu og hvernig QBUS er augljós valkostur fyrir þig.

Lestu nánar

Man som står vid förvaringsmöbler

QBUS fyrir innganginn og setustofuna

Með QBUS geturðu auðveldlega innréttað anddyrið og setustofuna þannig að plássið sé nýtt á sem bestan hátt, óháð stærð þess. Settu saman mismunandi einingar úr vörulínunni til að finna geymslulausn sem hentar þér og fullnýtir rýmið og tryggir um leið að allir hlutir séu á réttum stað. Það gerir vinnustaðinn aðlaðandi, jafnt fyrir starfsfólkið sem kemur til vinnu daglega eins og gesti og viðskiptavini sem eiga leið um.

Í fjölförnum rýmum með mikilli umgegni er mikilvægt að bjóða upp á geymslupláss þar sem auðvelt er að nát til hluta sem margir þurfa að nota en einnig læsanlegar geymslueiningar fyrir persónulega muni.Blandaðu saman opnum og lokuðum geymslum og búðu til aðlaðandi og notalegt umhverfi þar sem hægt er að setjast niður og spjalla, eiga símtöl tengd vinnunni og geyma hluti sem þú þarft ekki á að halda á þessari stundu.
Sofi
Einstaklingur með tösku við opinn skáp
Nærmynd af geymsluskáp
Við þróuðum QBUS vörulínuna vegna þess að við sáum mikla þörf fyrir geymslupláss fyrir allan vinnustaðinn, allt frá innganginum að skrifborðinu.
Anna Helgesson, vörustjóri hjá AJ Produkter

Meiri innblástur frá QBUS

Nánari upplýsingar um QBUS!

Fyrir stóra eða litla vinnustaði, hefðbundnar skrifstofur þar sem starfsfólkið situr við hvert sitt skrifborð eða virkar skrifstofur með opnum rýmum – er QBUS geymslulína sem hægt er að aðlaga að fullu að þörfum vinnustaðarins. Lærðu meira um þessa húsgagnalínu og hvernig QBUS er augljós valkostur fyrir þig.

Lestu nánar

Tveir einstaklingar sitja á skrifstofustólum við skrifborðin sín og tala saman.
Nærmynd af geymsluskáp

Sæktu QBUS í BIM-models

Allar einingar úr þessari vörulínu eru fáanlegar sem BIM-models, sem kemur sér vel fyrir þig sem arkitekt, þar sem þú getur auðveldlega séð hvernig þær koma út í stafrænu umhverfi.

Lestu nánar

QBUS fyrir kaffistofur og mötuneyti

Nýttu plássið í mötuneytinu til fulls með hagnýtum geymsluhúsgögnum úr QBUS vörulínunni. Fyrir utan að uppfylla þær geymsluþarfir sem venjulega eru til staðar í mötuneytum, er einnig hægt að nota húsgögnin til að skapa skemmtilegt umhverfi fyrir samræður, fundi og samvinnu. Fjölbreytt úrvalið sem QBUS býður upp á gerir auðvelt að setja mismunandi einingar saman við aðrar og búa til persónulega geymslulausn.

Hægt er að geyma bolla, glös og diska á opinni hillu eða í lokaðri geymslu, allt eftir því hvað hentar fyrirtækinu best. Með QBUS eru margir innréttingamöguleikar í boði, hvort sem skrifstofan er stór eða lítil. Það eru geymslueiningar sem hægt er að sitja á og tilvalið að stilla upp í löngum röðum, eða stökum, til að gera rýmið aðeins meira aðlaðandi.
Kona stendur fyrir framan nokkra geymsluskápa og les bók.
Skáphandfang
Taska ofan á QBUS geymslueiningu.

Meiri innblástur frá QBUS

Fáðu hjálp frá innanhússhönnunarsérfræðingum okkar!

Við hjá AJ Vörulistanum erum alltaf hér til að aðstoða þig með innanhússhönnunarlausn sem er aðlöguð þínu tiltekna fyrirtæki. Hafðu samband til að fá ókeypis ráðgjöf ef þú hefur spurningar um efnisval, vantar innblástur eða vilt vita hvaða valkostir myndu henta þínum húsnæði best. Við erum ánægð að segja þér meira um valkosti þína.
Tegund stofnunar
Hvað vantar þig aðstoð við?Viðhengi
Með því að smella á senda staðfesti ég að ég hafi lesið persónuverndarstefnuna.