Pakki

Vinnubekkur: 750 kg: L2000 mm: stál

Vörunr.: 232246
  • Höggþolið stályfirborð
  • 1 x 4 skúffueining innifalin
  • Fyrir þungar vörur
Pakki sem inniheldur vinnubekk með mikla burðargetu, stillanlega fætur og læsanlega skúffueiningu með fjórum skúffum.
Lengd (mm)
242.127
Með VSK

Vörulýsing

Hagnýt pakkalausn sem sameinar stöðugan og sterkan vinnubekk og mjög aðgengilega og hentuga geymslu. Vinnubekkurinn er mjög hentugur fyrir óvægið og krefjandi umhverfi og þolir mikla þyngd eða allt að 750 kg ef álaginu er jafndreift. Skúffueininguna sem fylgir má auðveldlega festa undir borðplötuna svo þú hefur verkfæri og aðra hluti ávallt við höndina.
Borðplatan, sem er sérstaklega þykk, er klædd stáli sem gerir yfirborðið mjög slitsterkt. Það veitir góða vörn gegn harkalegri meðferð, höggum og oddhvössum hlutum. Það þolir alla vökva, þar með talið olíu og efnaleka og er auðvelt að hreinsa. Sterkur stálramminn er duftlakkaður í ljósgráum lit. Fæturnir eru stillanlegir sem gerir þér mögulegt að stilla hæðina frá 740 mm-995 mm svo vinnustellingin verði eins þægileg og mögulegt er. Ekki gleyma að bæta við vinnumottu á gólfið til að minnka álagið á fætur, hné, mjaðmir og bak þegar staðið er við vinnuna!
Skúffueiningin er búin til úr sterkri stálplötu sem gerir hana slitsterka og endingargóða. Einingin er með miðlæsingu (lyklar innifaldir) sem læsir öllum skúffunum samtímis. Hún inniheldur fjórar skúffur sem eru misdjúpar til þess að geyma verkfæri og aðra hluti. Skúffurnar liggja á traustum brautum og hægt er að draga þær út allt að 100% sem auðveldar aðgengi. Hver skúffa ber að hámarki 50kg. Bættu við hagnýtu skúffuskilrúmi sem auðveldar þér að flokka skrúfur, nagla og aðra smáhluti og gefa þér góða yfirsýn yfir innihald skúffunnar.

Skjöl

Þessi pakki inniheldur