Vinnuborð á hjólum Motion

Hæðarstillanlegt handvirkt, 1200x800 mm, undirhilla, 150 kg, ljósgrátt

Vörunr.: 274231
  • Hæðarstillanlegur
  • Með hjólum og botnhillu
  • Slitsterk borðplata
Vinnuvistvænn vinnubekkur á hjólum, með handvirka hæðarstillingu sem stjórnað er með innbyggðri sveif. Vinnubekkurinn er sterklegur, með slitsterka borðplötu og hagnýta undirhillu. Hann hentar vel fyrir létta vinnu í iðnaðarumhverfi, í vöruhúsum og svipuðum aðstæðum.
Lengd (mm)
302.696
Með VSK
7 ára ábyrgð

Vörulýsing

Hæðarstillanlegur vinnubekkur gerir þér kleift að stilla til þá vinnuhæð sem hentar þér hverju sinni yfir daginn. Þetta er sérstaklega hentugt þegar nokkrir aðilar eru að vinna á sömu vinnustöð þar sem hver og einn getur stillt bekkinn að sinni hæð til að finna sem besta vinnuhæð. Vinnubekkurinn er með handvirka hæðarstillingu frá 730 til 1170 mm.
Ekki gleyma að bæta við vinnumottu til þess að létta á fótum, hnjám, mjöðmum og baki þegar staðið er við vinnuna!

Þessi færanlegi vinnubekkur er búinn fjórum snúningshjólum, sem gefa honum mikinn sveigjanleika, þar af tveimur með bremsum. Þannig getur þú skapað fjölhæfa og færanlega vinnustöð sem auðvelt er að færa til þegar þess þarf. Vinnubekkurinn er með 24 mm þykka borðplötu úr viðarlíki með ABS kant. Borðplatan er mjög slitsterk og hvílir á grind sem er gerð úr ferköntuðum stálpípum með sterkar festingar sem þola mikla notkun.

Hæðarstillingin er handvirk og stýrt með handvirkri sveif. Hámarks burðargeta er 150 kg miðað við jafndreift álag.

Skjöl

BIM models

Vörulýsing

  • Lengd:1200 mm
  • Breidd:800 mm
  • Þykkt borðplötu:24 mm
  • Hámarkshæð:1110 mm
  • Fætur:Hæðarstillanleg grind með sveif
  • Týpa:Með neðri hillu
  • Lágmarkshæð:770 mm
  • Þvermál hjóla:125 mm
  • Litur borðplötu:Ljósgrár
  • Efni borðplötu:HPL
  • Litur fætur:Silfurlitaður
  • Litakóði fætur:RAL 9006
  • Efni fætur:Stál
  • Hámarksþyngd:150 kg
  • Tegund hjóla:4 snúningshjól
  • Hjól:Heilgúmmí
  • Þyngd:61,8 kg
  • Samsetning:Ósamsett