Skúffueining á hjólum Flexus, 3 skúffur, beyki
Litur:
Veldu Litur!
Velja...
Beyki
Grár
Hvítur
38.797
Verð með VSK
- Viðarlíki á öllum hliðum
- Afhentur samsettur
- Kemst fyrir undir skrifborði
Færanlegur skúffuskápur með skúffur, grá handföng úr áli, miðlæsingu og fjögur hjól, þar af tvö með bremsur.
Þetta er AJ Vörulistinn

- Upplýsingar um vöru
- Vörur í sömu línu
- Greiðsla og afhending
Nánari vörulýsing
Þessi stílhreina, fyrirferðalitla skúffueining úr Flexus húsgagnalínunni býður upp á hagnýtt geymslupláss og er góð viðbót við vinnustöðina án þess að taka of mikið pláss. Hún passar fullkomlega við aðrar vörur í Flexus línunni en vegna þess að hún er fáanleg í mismunandi útgáfum af viðarlíki, er auðvelt að nota hana með flestum húsgögnum.
Skúffurnar eru með glæsileg, grá álhandföng. Snúningshjólin gera hillueininguna fjölhæfari og gera það auðvelt að færa hana til eftir þörfum á meðan hjólin með bremsurnar koma í veg fyrir að hún færist úr stað á meðan hún er í notkun. Þú getur komið skúffueiningunni fyrir undir skrifborðinu til að spara pláss en þar sem að hún er klædd viðarlíki á öllum hliðum, getur hún vel staðið ein og sér í opnum skrifstofurýmum. Viðarlíkið er endingargott og auðvelt í þrifum. Miðlæsingin læsir öllum skúffunum á sama tíma og kemur í veg fyrir að aðrir geti farið í gegnum innihald þeirra. Skúffuskápurinn kemur samsettur.
Flexus húsgögnin eru hönnuð fyrir fólk sem er að leita að húsgögnum sem eru endingargóð, þarfnast lítils viðhalds og er auðvelt að laga að aðstæðum! Með því að velja Flexus og þá mörgu notkunarmöguleika sem hún býr yfir er auðvelt að sníða skrifstofuna að þínum þörfum. Skrifstofulínan inniheldur allt frá fundarborðum og skápum yfir í færanlegar skúffueiningar og borð sem passa jafnt í smærri skrifstofur sem og á stærri vinnustaði. Með Flexus geturðu búið til geymslulausn sem er sérsniðin að þínum þörfum og óskum. Veldu skrifborð, bættu við skúffueiningu og bókaskáp og veldu svo hurðir á þá sem henta þér. Vantar þig lokaða geymslu? Veldu hurðir sem loka einingunni að fullu. Vilta frekar opna geymslu? Veldu hurðir sem loka hillunni að hluta eða hafðu eininguna án hurða. Þú getur bætt við skjalageymslum eða skúffueiningum til að gera geymsluna enn skipulagðari. Með fimm útgáfur af viðarlíki í boði er auðvelt að velja saman liti eftir eigin höfði!
-
Fylgiskjöl
Vörulýsing
Hæð: | 600 mm |
Breidd: | 400 mm |
Dýpt: | 600 mm |
Litur: | Beyki , Grár , Hvítur |
Litakóði: | D 8685 M , D 8902 PR , U 164 PE |
Efni: | Viðarlíki |
Fjöldi skúffur: | 3 |
Þyngd: | 27,4 kg |
Samsetning: | Samsett |
Ábyrgð: | 3 ár |
Lesa meira
Aðrar vörur í þessari línu Flexus