Skrifborð Adeptus II, vinstri, 2200x2000 mm, beyki/svart
Litur tegund borðplötu:
Veldu Litur tegund borðplötu!
Velja...
Beyki
Birki
Litur fætur:
Veldu Litur fætur!
Velja...
Silfurlitaður
Svartur
334.734
Verð með VSK
- Rafstýrð hæðarstilling
- Sérstaklega stórt vinnusvæði
- Náttúrulegur viðarspónn
Extra stórt hæðarstillanlegt hornborð með vinstri handar borðplötu úr viðarspón. Skrifborðið er með sterkan T-ramma úr stáli.
Þetta er AJ Vörulistinn

- Upplýsingar um vöru
- Vörur í sömu línu
- Greiðsla og afhending
Nánari vörulýsing
Búðu til vinnuvistvænt og heilbrigt vinnuumhverfi með þessu nýmóðins, rafstýrða, hæðarstillanlega skrifborði! Líkaminn þarf á hreyfingu að halda og græðir á fjölbreyttri vinnustöðu. Það örvar blóðrás og dregur úr óþarfa álagi. Þetta skrifborð leyfir þér að skipta á milli þess að sitja og standa uppréttur yfir vinnudaginn. Þú getur auðveldlega stillt hæðina á borðplötunni svo hún henti skrifborðsstólnum þínum, með að ýta á einn takka.
Skrifborð með sérstaklega stóra skrifborðsplötu úr slitsterkum, auðþrifalegum, viðarspón sem er tilvalinn ef þú vilt mjög stórt vinnusvæði. Borðið er framlengt á öðrum endanum svo þú fáir meira vinnupláss og er með úrtaki fyrir miðju svo þú getir setið nær borðinu meðan þú vinnur. Það ýtir undir vinnuvistvænni vinnustellingu. Borðið er útbúið með tveimur snúruopum og felur því snúrur og kapla frá tölvu, síma og flr. Það hjálpar til við að halda vinnurýminu lausu við allt snúrufargan. Lögunin á borðplötunni auðveldar þér að nýta hornin í herberginu, sem oft er erfitt að innrétta.
Hornskrifborðið er með T-ramma sem er búinn til úr stáli og þremur fótum til að hann sé sérstaklega stöðugur. Hver fótur er búinn sér mótor, þar af leiðandi er hægt að stilla hæð borðplötunnar jafnt og hljóðlega. T-Ramminn hefur enga slá á milli lappanna svo það er nóg pláss undir borðinu.
Bættu við skrifborðið þitt húsgögnum í stíl sem fullnægja þörfum þínum til að skapa skilvísan og skipulagðan vinnustað. Gleymdu ekki að bæta við mjúkri gólfvörn sem veitir aukin þægindi þegar unnið er standandi sem og fótahvílu undir fætur þegar unnið er sitjandi.
-
Fylgiskjöl
Vörulýsing
Lengd: | 2200 mm |
Breidd: | 2000 mm |
Lágmarkshæð: | 630 mm |
Hámarkshæð: | 1280 mm |
Hámarksþyngd: | 130 kg |
Þykkt tegund borðplötu: | 19 mm |
Tegund borðplötu: | Vinstri |
Litur tegund borðplötu: | Beyki , Birki |
Litur fætur: | Silfurlitaður , Svartur |
Litakóði fætur: | RAL 9005 , RAL 9006 |
Efni tegund borðplötu: | Spónn |
Efni fætur: | Stál |
Fætur: | Rafknúin hæðarstilling |
Þyngd: | 70 kg , 84 kg |
Samsetning: | Ósamsett |
Ábyrgð: | 3 ár |
Lesa meira
Aðrar vörur í þessari línu Adeptus