Merkiprentari 420P
Vörunúmer
24920
44.444
Verð með VSK
- Getur prentað frá PC/Mac
- Baklýstur skjár
- Hágæða, alhliða prentari
Handheldur miðaprentari sem má tengja bæði við Mac og PC tölvu en má taka með sér þegar hann er ekki tengdur. Honum fylgir merkimiðahylki (svart letur á hvítum grunni), USB snúra, lithium rafhlaða og hleðslutæki.
Þetta er AJ Vörulistinn

- Upplýsingar um vöru
- Fylgihlutir
- Greiðsla og afhending
Nánari vörulýsing
Þessi hágæða, handheldi miðaprentari er í þægilegri stærð og með marga sniðuga eiginleika sem gera hann mjög afkastamikinn. Hann er mjög notendavænn og með óteljandi notkunarmöguleika!
Þú getur tengt miðaprentarann við tölvuna og prentað strikamerki, fyrirtækismerki, allar leturgerðir og grafík sem til eru á tölvunni, miðauppsetningar úr gagnaskrám og mikið fleira. Þú þarft ekki að setja upp neinn hugbúnað þar innbyggður hugbúnaðurinn birtist sjálfkrafa á tölvuskjánum tilbúinn til notkunar.
Þegar prentarinn er notaður án þess að tengjast við tölvu er fljótlegt að færa inn texta með venjulegu ABC lyklaborði. Notaðu aðgerðalyklana fyrir greinamerki, gjaldmiðlamerki og sérstök tákn. Þú getur valið um átta leturgerðir, sjö leturstærðir og tíu textagerðir. Þú getur líka auðkennt texta með átta römmum og undirstrikun. Sparaðu tíma og komdu í veg fyrir tvíverknað með því að geyma allt að 10 mismunandi miða í minninu. Stór, baklýstur skjárinn með fjórar línur sýnir útlit textans áður en þú prentar hann.
Prentarinn er með endurhlaðanlega lithíum rafhlöðu sem gerir þér mögulegt að prenta miða hvar sem þú ert svo þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af því að skipta um rafhlöðu og kostnaðinum sem því fylgir. Þar sem auðvelt er að bera prentarann með sér og tengja hann við hvaða tölvu sem er, geta allir á skrifstofunni notað hann þegar þess þarf.
-
Fylgiskjöl
Vörulýsing
Lengd: | 215 mm |
Hæð: | 57 mm |
Breidd: | 111 mm |
Þyngd: | 0,95 kg |
Ábyrgð: | 3 ár |
Lesa meira
Fylgihlutir
Sjá meira