Með VSK
Góð þjónusta14 daga skilafrestur7 ára ábyrgð

Búðu til skilvirkt og vel skipulagt skrifstofuumhverfi

Getur hefðbundið skrifstofuumhverfi boðið upp á bestu mögulegu aðstæður fyrir allt sem þarf að gera á dæmigerðum vinnudegi? Já, ef skrifstofurýminu er skipt í svæði útfrá ólíkum störfum og áherslum – allt frá samskiptum í setustofum og fundarherbergjum til vinnu án truflana við föst skrifborð og í minni fundarherbergjum. Hér á eftir fylgja nokkrar góðar ábendingar um hvernig þú getur skipulagt skrifstofuna til að skapa betra vinnuumhverfi fyrir allt starfsfólkið.
Blandarðu saman vinnu heima og vinnu á skrifstofunni? Þá eru skrifstofur sem eru ekki með fastar vinnustöðvar góður kostur sem býður upp á mikinn sveigjanleika. Veldu laust borð um morguninn, settu tölvuna í samband og þú ert tilbúinn fyrir vinnudaginn. Opið skrifstofuumhverfi hentar einnig vel fyrir skrifstofur með föst skrifborð þar sem starfsfólkið vinnur náið saman. Í báðum tilvikum gæti þurft að hafa aðskilinn fundarstað í nágrenninu þar sem hægt er að halda stutta fundi án þessa að trufla aðra. Prentararar og kaffivélar eru staðsettar miðsvæðis – til að tryggja sem best flæði og skilvirkni. Munið að koma á góðu skipulagi og halda skrifstofunni snyrtilegri.